03.11.2006 23:33:27 / Sæmi Sig
Er að telja í mig kjark til að fara að blogga á ný samt ekki núna
þó enn síðar þetta kerfi er búið að uppfæra sig sýnist mér og fer
kannski að vera sniðugt.
tjá sæmi
»
13.09.2006 17:21:53 / Sæmi Sig
Veit hreinlega ekki hvort maður á að vera að halda þessu áfram hef
nú ekki það mikið að segja, enn get þó sagt það að: um síðustu
helgi var nýjasti frændinn skírður og hlaut hann nafnið Emil Örn og
fékk ég þann heiður að fá að vera skírnavottur hans eða eins og
sagt er á meiginlandinu "godfather". Á sunnudaginn skruppum við
Nonni frændi til Grindavíkur og kepptum á golfmóti í snarbiluðu
veðri og er skemmst frá því að segja að mér tókst að ná 4. sætinu
ekki af því að ég sé það góður heldur frekar heppinn þar sem menn
voru almennt að spila undir getu v/ veðurs enn samt 10000.kjall í
formi gjafabréfs.
Magni búinn að standa sig alveg öldungis vel undanfarnar vikur og
nú er komið undir lok í þessu verð að viðurkenna að ég er pínu
spenntur að sjá hvernig fer, merkilegt hvað landinn er fljótur að
gleyma sérstaklega aðrir tónlistarmenn og útvarpslið sem er búið að
sniðganga hann og ÁMS undanfarinn ár keppast nú í röðum að snobba
fyrir honum og glatað hvað liðið sem kemur í þessa svokölluðu
Magnavöku á skjá einum er með mikið skítkast útí ÁMS, svo er fólk
að segja að það voni ekki að hann vinni hversvegna í ósköpunum
hvaða rétt hefur fólk á að segja það hann fór í þetta vitandi að
hann gæti unnið og því vona ég bara að Magni komi sem bezt út úr
þessu hvort sem hann vinnur eða ekki, svo vona ég að vinir
mínir og félagar úr ÁMS nái að nýta sér þetta á sem besta hátt þeir
eiga það sannarlega skilið.
Takk fyrir mig og kannski síðar
PS. synd að Böðvar Jens sé hættur að blogga.
»
21.08.2006 00:51:29 / Sæmi Sig
Fór í golfmót í dag í Hveragerði gekk ekkert sérstaklega enn ég
lendi í holli með nv. íslandsmeistara í holukeppni og fyrrum
íslandsmeistara í höggleik góður drengur þar á ferð og alveg
svakalega góður í golfi, vá hvað ég á mikið eftir ólært.
»
17.08.2006 23:32:56 / Sæmi Sig
Er byrjaður að vinna eftir langt sumarfrí, sennilega samt ekki
alveg nógu langt sumarfrí hefði alveg verið til í að vera lengur
það verður algjörlega brjálað að gera næstu vikurnar og mánuði.
Er að hugsa um að fara á golfmót á sunnudaginn.
»
09.08.2006 12:00:39 / Sæmi Sig
Kl. 09.23 í morgun eignaðist ég lítinn frænda þegar Þór bróðir minn
og Fríða mágkona eignuðust strák öllum heilsast vel og hjartanlega
til hamingju.
»
31.07.2006 09:28:09 / Sæmi Sig
Ég er farinn í útilegu á gamla mátan bara með tjald og prímus og
verð þar sem rignir ekki (maður getur víst ekki sagt þar sem
sólin skín)
»
25.07.2006 18:42:50 / Sæmi Sig
Sæll ef það er einhver sem hér kíkir þar sem ég hef nú ekki sett
neitt hér síðustu mánuði hef bara ekki fundið mig til að skrá
eitthvað allt einhvernveginn við það sama, ég er að vísu í
sumarfríi þessa stundina og verð eitthvað fram í ágúst. Það sem
hefur gerst í sumar er c.a. fór á landsmót hestamanna og var í viku
búinn að lækka forgjöfina um 1,3 vann Lúllamótið og keypti mér
tjald, myndavél, gönguskó og driver og ætla með þetta allt saman í
útilegu á næstunni kannski um næstu helgi. Hvað um það ég stefni á
að vera aktífari í vetur við að blogga eitthvað sé til hvað ég
endist við þetta í sumar sí jú og takk fyrir innlitið.
»
21.03.2006 09:15:00 / Sæmi Sig
Hey hey hey og komi
þið sæl allir sem einn og þakka öll innlitin og þolinmæði á meðan
ég hef verið fjarverandi.
Afhverju hefurðu verið fjarverandi kann einhver að spyrja, tja ef
ég mætti svara því þá er það nú bara þannig að ég hef bara
eiginlega lítið verið að væflast um internetið og hreinlega ekkert
að segja akkurat ekkert, ég er búinn að vera velta þessu einmitt
fyrir mér hvernig þetta líf er hjá manni og er búinn að komast að
því að almættið hefur sennilega ætlast til að ég yrði bara svona
vinnumaur og alltaf einn og þá er það bara svoleiðis kannski ekkert
sérlega skemmtilegt enn samt þó það.
Það er árshátíð hjá RÚV á laugardag og
af ýmsum ástæðum þá ætla ég ekki þetta árið.
Ísland úr NATO herinn burt var sungið einu sinni
og hef ég nú ekki getað tekið undir það enn þegar það er komið
svona fram við land mitt og þjóð eins og þeir gera Bússararnir
þarna vesturfrá þá er ég sammála þeim sem segja að við eigum að
rifta þessum svokallaða samning og segja þeim að hypja sig í burtu
með allt sitt innan þriggja mánaða, við hringjum í ykkur ekki þið
hringja í okkur og allt það.
Gaman að segja frá því að ég var í varadómnefnd í
júróvisionkeppninni sem bæ þe vei fólk horfir á og hefur gaman af
samkv. skoðannakönnun frá Gallúp og henni til staðfestingar
skoðannakönnun á þessari síðu, allaveganna, við vorum 4. í
undankeppni og 6. á lokakvöldinu gáfum stig og sendum frá okkur ef
eitthvað skildi klikka í símkerfinu sem það gerði ekki að vísu ég
var ekki sáttur við dóm þjóðarinnar að senda Silvíu í keppnina enn
videoið er töff töff töff þannig að þetta er kannski bara fínt enn
ég er þó sannfærður um að við komum ekki til með að keppa á
lokakvöldinu úti í Aþenu. Persónulega fannst mér lagið sem Regína
söng flottast enn var reyndar orðin svolítið skotin í laginu sem
Dísella flutti, enn hvað veit ég.
Þakka þér fyrir að nenna að lesa þetta og ekki
síður fyrir að koma hingað með óskir um góðar stundir, Sæm
Sig
ps; ég var sjálfur gestur númer 3000. og hef ég
unnið par af ullarsokkum frá Víkurprjóni til hamingju.
»
01.02.2006 09:46:28 / Sæmi Sig
Rikka vertu velkominn í bloggheiminn, og svo er ný
skoðannakönnun kominn, annars er ég hress að vísu smá stress, nú
ætti ég að segja bless enn það er eitthvað svo kljént að ég segi
bara bæ.
biðst afsökunar á þessu veit ekki hvað kom yfir mig.
»
23.01.2006 20:30:03 / Sæmi Sig
Aðeins 20% þeirra sem greiddu atkvæði segjast strengja áramótaheit
ég verð nú að ég hélt að þessu væri öfugt farið. Annars allt ágætt
að frétta þó finnst mér ég vera að upplifa hálfgert groundhogday.
»
04.01.2006 11:24:03 / Sæmi Sig
Eitt get ég ekki skilið það er allt þetta jákvæða með
áramótaskaupið það var jú að vísu betra enn ég átti von á enn fyrir
utan Björgvin Franz að leika poppstjörnurnar og Eggert Þorleifs sem
Eiríkur þá var það alveg glatað, Edda og Laddi spilað á auknum
hraða var fyndið fyrir 20. árum ekki í dag á tímum Ipod og
gsm, kannski er það ég sem er ekki á réttum tíma má svo sem
vera.
Smart hjá Eiði Smára að láta 500.000. kall sem hann fékk
fyrir að vera valinn Íþróttamaður ársins renna til einstakrabarna,
ég ætla nú samt ekki að hætta að halda með Liverpool enn samt
flottur leikur hjá Eiði.
»
02.01.2006 03:08:45 / Sæmi Sig
Nú árið er liðið og allt það, ég eyddi jólunum í sumarbústað
grillaði mér í matinn og hafði það bara nokkuð huggulegt held bara
að ég geri þetta að venju um jólin að vísu rigndi einhver ósköp
þannig að ég fór ekki í pottinn enn samt alveg til fyrirmyndar. Á
jóladag fór ég eins og venjulega til Heimis og sátum við þar og
spiluðum fram á nótt enn það höfum við gert í meira enn 20. ár. Svo
var unnið á milli jóla og nýjárs og þann 30.des var svo skellt sér
á Sölvakvöld í hveragerði þar sem Glampar ætluðu að spila 4-5. lög
enn eitthvað varð nú minna úr því enn til stóð tókum 2.5 lag þar
sem Hannes fór á kostum. Gamlárskvöld var ég heima fékk gott að
borða hjá Þóru frænku og fjölskyldu svo var farið í Öskjuhlíðina og
skotið upp flugeldum og komust við öll heil frá því og í dag hefur
maður legið í algjörri leti horft á dvd og ekki gert neitt að viti.
Ég hef mikla trú á þessu ári sem nú er nýbyrjað margt framundan og
er ég staðfastur í að gera margt og mikið á þessu ári bæði í leik
og starfi verða betri í dag enn í gær o.sv.frv.
amen í bili og megirðu eiga gott ár.
Sæmi
»
05.12.2005 22:20:48 / Sæmi Sig
Jæja ég hef ekkert skrifað hér í rúman mánuð enda hef svo sem
ekkert að segja þannig hef bara verið að vinna alla daga til 9. á
kvöldin og stundum lengur sem hefur líka orðið til þess að maður er
alveg hættur að hitta nokkurn mann en svona er nú þetta bara sem
betur fer er ágætt í vinnunni flesta daga allaveganna. Hef ekkert
að segja þannig að ég hætti bara núna og kveð að sinni.
»
22.10.2005 11:11:25 / Sæmi Sig
Þetta er fyrir þá ættingja sem hingað ramba.
Kíkið endilega á síðuna hjá ljósmyndasafni Akranes þar getið þið
slegið upp nafni eða atburði td. ferming og kannski er mynd af
ykkur þarna. Slóðin er http://www.myndabanki.is/akranes/
Dæmi um mynd og texta, það eru fleiri myndir af honum afa mínum
og fleirum.

|
| Lúðvík
Jónsson |
| Þetta er Lúðvík Jónsson, sem alltaf var
kenndur við Ársól og kallaður "Lúlli í Ársól". Lúðvík var um margt
merkilegur maður og fjölhæfur. Hann vann m.a. um tíma á
Rannsóknarstofu Sementsverksmiðjunnar. Á myndinni er hann með safn
sitt af skeljum. Guðmundur Rúnar sonur hans er þekktur myndlista-
og tónlistamaður og samdi m.a. lagið "Súrmjólk í hádeginu og seríos
á kvöldin" sem margir þekkja. |
| Nr:5058 |
 |
Ár: |
 |
Myndhöfundur:Jóhannes
Gunnarsson | |
»
13.10.2005 00:19:47 / Sæmi Sig
Ég má til með að setja þessa mynd á síðuna enn hún var tekin af
okkur Heimi í rússibananum þegar við fórum til köben um daginn eins
og sjá má hressandi skratti

»
Síður:
1 2 3 4